Tvöföld hleðslustöð án kapals

Tvöföld hleðslustöð án kapals

359.900 kr.
Magn
Vörunúmer: hl-2-0

Tvöföld hleðslustöð frá frá Faradice hentar fyrir fyrirtæki og stór bílaplön. Tvöföld stöð hleður tvo bíla samtímis - 2*22KW - og er innbyggð DC vörn, yfirálags- og lekastraumsvörn í stöðvunum.

Hannaðar fyrir íslenskar aðstæður sem eru vatns-, ryk- og vindþolnar sem tryggir langtímaendingu. Stöðvarnar eru í verndarflokki IP65 og CE vottaðar.

Öll hönnun og samsetning fer fram á Íslandi og eru allir íhlutir frá viðurkenndum framleiðendum. Ef stöð bilar er einfalt er að skipta um íhlut og stöðin verður eins og ný á eftir.

Stýribúnaður er í lokuðum plastkassa og skel úr ryðfríu stáli, einfalt er að útfæra útlit stöðvanna að óskum viðskiptavina. Hægt er að fá stöðvarnar með aðgangsstýringu og með eða án kapals.