Image

Stjórnendur

Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri
Einar Þór Bernhardsson, forstöðumaður
552 6810

Um okkur

Örtækni var stofnað árið 1976. Á upphafsárum félagsins var Örtækni í samstarfi við Háskóla Íslands um þróun og framleiðslu á vogum fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi. Síðar var fyrirtækið Marel stofnað um þá framleiðslu.

 

Gjaldmælar fyrir leigu- og sendiferðabíla voru hannaðir og framleiddir um langt skeið og annaðist starfsfólk Örtæknis viðhaldsþjónustu og uppfærslu á hugbúnaði í mælunum. 

Árið 1990 hóf Örtækni að flytja inn hágæða netsnúrur og tölvutengi frá þekktum evrópskum framleiðendum. Örtækni hefur í kjölfarið sérhæft sig í smíði og samsetningu á öllum gerðum kapla auk þess að bjóða upp á mikið úrval af lýsinga-, tengi- og tæknibúnaði. 

Stór hluti starfsemi Örtækni er samsetning á margskonar  rafbúnaði fyrir hin ýmsu fyrirtæki sem oftar en ekki tengjast sjávarútvegi. Örtækni vinnur með mörgum af framsæknustu fyrirtækjum landsins og þjónustar öll helstu tækni- og iðnfyrirtæki á Íslandi.  

Árið 1985 stofnaði Örtækni ræstingadeild sem sér um daglegar ræstingar jafnt fyrir stofnanir sem einkafyrirtæki.

Örtækni sinnir einnig almennum viðgerðum á raftækjum og rafbúnaði og sér um viðgerðir á rafmagnsverkfærum fyrir söluaðila.

Síðla árs 2026 keypti Örtækni reiðhjólaþjónustu Borgarhjóls sem hefur starfað síðan 1983, Örtækni sinnir öllum almennum viðgerðum fyrir reið- og rafmagnshjól.